15. nóvember 2009 klukkan 18:25
Elsku fjölskylda og vinir.
Ég hef ekki staðið mig mjög vel í þessari ferð í blogginu. En ég var að setja nokkrar myndir inn frá heimsókn í fátækrahverfi hér, set fleiri myndir inn seinna. Þarf að fara að pakka núna fyrir ferð til Jóhannesarborgar. ;-)
Bless í bili.
Björg
Björg Davíðsdóttir
13. nóvember 2009 klukkan 20:49
Því miður hefur fésið "facebook" tekið það mikið af tíma mínum að ég hef ekki bloggað síðan ég kom hér út,
en það hefur ýmislegt drifið á daga mína þennan tíma sem ég hef verið hér í Suður - Afríku. Þó svo að ferðin hafi aðallega verið farin til að njóta samvista við dóttur, tengdason og barnabarn þá var farið aðeins í fátækrahverfi og á barnaheimili sem rekið er hér ekki langt frá, sem mig hafði langað til að skoða áður en ég fór að heiman. Mér þótti geysilega gaman að skoða þetta heimili og fræðast um hvernig hlutirnir gengju fyrir sig þar. Þar voru einungis 30 börn sem höfðu reynt ýmislegt um ævina sem ég ætla svo sem ekki að fara nánar út í hér. Ég set inn nokkrar myndir frá þeirri heimsókn, en Nína, Ryan og meira að segja Daníel léku sér við krakkana á meðan ég spjallaði.
Börn eru alls staðar eins, þau njóta þess þegar fullorðnir leika sér með þeim.
Takk fyrir mig í bili.
Björg Davíðsdóttir
Björg Davíðsdóttir
13. október 2009 klukkan 14:10
Björg Davíðsdóttir
15. júlí 2009 klukkan 22:37
Kæru vinir.
Þar sem ég sé að það er alltaf einhver hreyfing á síðunni minni setti ég inn nokkrar myndir frá heimsókn okkar á heimili þar sem ættmóðirin er holdsveik. Aðstæður eru reyndar ólýsanlegar. Oft velti ég því fyrir mér hvernig fólkið hafi það núna. Ég veit það er ekki hægt að hjálpa öllum en æi.....þetta er bara langt út yfir allt.
Kveðja í bili Björg í rólegheitunum í Kópavoginum
Björg Davíðsdóttir
22. maí 2009 klukkan 18:47
Ég setti inn örfáar myndir frá því í Uganda.
Kem vonandi með fleiri eftir einhverja daga.
Kveðja
Björg
Björg Davíðsdóttir
20. apríl 2009 klukkan 23:22
Því miður var ekki auðkomist í netsamband í Uganda svo lítið varð um skrif á meðan við vorum þar.
Við vorum í Rackoko í nokkra daga og nutum okkar með norðan fólkinu.
Því miður hefur stríðið þar farið illa með margan ungan manninn og stúlkuna. Nokkur þeirra voru í viðtölum hjá okkur og sorglegt er að sjá ungar stúlkur og drengi sem hafa orðið að drepa aðra til að komast lífs af sjálf. Krökkum hafði verið rænt frá foreldrum sínum og þau svo þjálfuð sem hermenn og liður í því var að láta þau drepa m.a. svo þau ættu ekki afturkvæmt á sínar heimaslóðir. Þeim var misþyrmt og stúlkum jafnvel nauðgað og þær látnar verða viðhald þess sem fór fyrir hópnum. Það var jafnvel til í að börn væru látin éta mannakjöt. Sem betur fer lauk þessu fyrir um tveimur árum og kyrrt hefur verið á þessum slóðum síðan. Yndisleg unglingsstúlka átti svo erfitt þegar hún var að segja mér frá lífi sínu við þessar kringumstæður, hún hafði flúið og komist undan fyrir nokkrum árum, en þetta skilur alltaf eftir sár í hjartanu. Hún átti erfitt með að fyrirgefa sjálfri sér þó hún hafi ekki haft neitt val barnið.
Mikið ósköp getur fólkið orðið grimmt. Það er ekki nokkur leið að skilja hvernig svona getur gerst.
Strákarnir okkar Halldór og Davíð stóðu sig eins og hetjur og spiluðu fótbolta við krakkana og jafnvel sögðu nokkur orð í útvarpsstöð sem er rekin þarna á svæðinu af Francis manni Trudyar sem fer fyrir ABC starfinu í Uganda. Þeir fóru líka með okkur í heimsóknir í kring og var oft mikið gaman og margt undarlegt að skoða.
Bless í bili.
Björg
Svona til gamans þá borðaði ég ýmisleg merkilegt í þessarri ferð s.s. eins og SÓLÞURRKAÐAR ENGISPRETTUR OG LÉTTSTEIKTA MAURA og var þetta hinn besti matur með þrælgott eftir bragð. ;) Bara svona svo þið getið prófað þegar þið komist í tæri við þennan úrvals mat.
Björg Davíðsdóttir
11. apríl 2009 klukkan 13:51
Rockoko - Yndislegur og friðsæll. Við vöknuðum hér í morgun við hanagal og líflegar samræður fólksins. Halldór og Davíð (10 og 11 ára) sem eru með okkur í ferðinni, eru komnir út að leika sér í fótbolta við strák hér á svæðinu. Hér sit ég svo við tölvuna mina með kaffibolla fyrir utan fallegt hús sem Francis hefur byggt fyrir gestkomandi. Ég upplifi bara friðsæld og kyrrð. Rennandi vatn er í húsinu og jafnvel sturta þó köld sé. Rafmagnið fór reyndar af um leið og við komum og er ekki komið á aftur, en þeir settu í gang vara rafstöð fram að miðnætti. Í dag er Rackoko eitthvað annað en fyrir þremur arum, en þá ríkti hér styrjöld. Börnum var rænt og þau seld í þrældóm, kvenfólkinu nauðgað, börnin látin drepa jafnvel vini og fjölskyldumeðlimi og svo framvegis. Hlutir sem við getum ekki einu sinni ímyndað okkur þó okkur sé sagt frá. Við vitum ekki enn hvað á að gera í dag, en hér er nóg að skoða svo ég segi bara bless í bili.
Kv. Björg
Björg Davíðsdóttir
09. apríl 2009 klukkan 16:23
9. apríl 2009
Sæl öllsömul!
Ég er núna á skrifstofu hjá ABC. Það verður ekki auðvelt að komast í internet í þessari ferð, en allt er i góðu lagi. Vorum að koma af markaðnum að kaupa ávexti fyrir ferðina norður. Förum þangað á föstudaginn. Sváfum í nótt á stað nálægt flugvellinum, en erum á leið núna á þann stað sem við komum til með að gista fyrstu dagana.
Strákarnir standa sig vel en eru svolítið þreyttir á köflum. Við vorum að hitta staffið á ABC skrifstofunni og förum í grill til Trudyar i kvöld.
Við erum ánægð en þreytt og skítug og sveitt. Það var bara hægt að komast í kalda sturtu í morgun á hótelinu. Við sögðum Davíð að fara allavegana í smá fótabað í morgun á hótelinu og hann var hálf hissa að það væri bara fat.
Meira seinna, það er svo lítill tími.
Kveðja, Björg
Björg Davíðsdóttir
09. apríl 2009 klukkan 16:22
8. apríl 2009
Nú sitjum við hér algjörlega uppgefin eftir viðburðarríkan dag og bíðum eftir kvöldmatnum. Í gær var það markaðurinn og þess háttar, þar sem við viðuðum að okkur vistum til að narta í yfir daginn og eins til að taka með okkur norður til Rockoko. En þangað verður farið snemma í fyrramálið. Dagurinn í dag fór svo í að heimsækja fjórar fjölskyldur, eins tókum við þátt í kennslutíma hjá 10 ára börnum, þar sem strákarnir sögðu aðeins frá Íslandi. Allsstaðar sem við komum er okkur heilsað eins og höfðingjum og fólkið alveg einstaklega elskulegt. Á morgun er svo 7-8 tíma keyrsla norður og þar verðum við þangað til á mánudaginn og þá er ferðinni aftur heitið til Kampala með viðkomu á einni næturgistingu í þjóðgarði þar sem við ætlum að hafa glaðan dag og skoða dýrin og náttúruna sem er alveg mögnuð hér.
Þetta verður að duga í bili 
Kveðja frá ferðalöngunum!
Björg Davíðsdóttir
06. apríl 2009 klukkan 20:46
Allt í góðu. Búinn að vera góður dagur. Allir að fara að sofa. Þurfum að vakna eftir rúmlega 5 tíma fyrir Ugandaflugið. Góða nótt.
Björg og félagar
Björg Davíðsdóttir